KKÍ samningur og leikmannamál I.E. deildarinnar.

KKÍkall1

Vill endilega óska KKÍ og Skeljungi til hamingju með gerða samninga í dag sem virkilega eiga eftir að hjálpa landsliðsstefnu Íslands til framtíðar, enda hefur bágur fjárhagur Körfuknattleikssambands Íslands reynst mörgum landsliðsverkefnunum fjötur um fót, enda þurftu a.m.k. 2 sterkir landsliðsmenn að draga sig út úr landsliðsverkefnum í vetur sökum fjárhagsaðstæðna.
  Það er líka frábært fyrir íslenzkan körfuknattleik að fá svona sterkan styrktaraðila inn í myndina, því að lengi vel hefur körfuboltinn þurft að þjást, ekki einungis vegna skorts á styrktarfé heldur einnig vegna sterkrar stöðu knattspyrnunnar og fortíðardýrkunnar RÚV, sjónvarps allra landsmanna á Handboltanum Shocking

Ég vona bara að bjartsýnin sem myndaðist við samningana í dag fylgi landsliðinu okkar til leiks við Georgíu á morgun, leiks sem ég væri mikið til í að fara á, en get ekki sökum veikinda minna vegna skæðrar magaveirusýkingar Sick

En eitthvað virðist mörgum liðum Iceland Express-deildar karla ætla að reynast erfitt að klára að styrkja sinn leikmannahóp!!!

Keflavík var búið að tryggja sér krafta Úkraníumannsins Denis Ikolevs en hann ákvað að ferski sjávargusturinn í Keflavík væri ekki nógu kaldur fyrir sig og hélt til Rússaveldis.   

Njarðvík var búið að tryggja sér hinn unga framherja Joe Webb, en hann sá að grænna gras úti í heimi væri heillavænlegra fyrir sína körfuboltaframtíð heldur en grænir búningar Njarðvíkurstórveldisins.

ÍR var búið að tryggja sér reynslu hins ógnarstóra Kósóva Nedzad Spahic, en auðæfi Dúbæskra svartolíuiðnjöfra heillaði hann víst þónokkuð meira en sældarlífið í Seljahverfinu.

Snæfell missti svo meistara Magna Hafsteins út úr hópnum vegna persónulegra mála.

Og Skallagrímur hefur enn ekki gert samning við annan Bosmann, þó svo að sögur fari fjöllunum hærra um hina ýmsustu leikstjórnendur. Veit það bara fyrir víst að þau mál skýrast á allra næstu dögum.

Mér er spurn vegna ofangreindra liða, þ.e.a.s. Keflavíkur, Njarðvíkur og ÍR, hvort að ekki þurfi bara að endurskoða hið umdeilda launaþak. Þó svo að launaþakið hafi verið gott og gilt framtak á sínum tíma, þá virðist það vera barn síns tíma, því að í óspurðum fréttum virðast fáir fara 100% eftir reglum þess og spurning hvort að KKÍ fari ekki bara að treysta sínum aðildafélögum fyrir sínum eigin fjármálum, því að lið úti í heimi virðast frekar heilla margan sterkan leikmanninn frekar en hin lágu laun á Íslandi??!!!

Þangað til næst.....

Skallinn


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ingólfur H Þorleifsson

Sæll Jói.

Þetta launaþak er löngu dautt. Það hefur ekkert eftirlit verið með því síðustu tvö tímabil og í raun ætti að afnema það hið snarasta. Þeir stjórnarmenn sem eru að vesenast í þessu körfuboltastarfi eiga að fá að reka sínar deildir eins og þeir vilja án afskipta körfuknattleikssambandsins. Leikmenn frá Evrópu eiga ekki að vera undir þessu þaki, því að Evrópa er orðið eitt atvinnusvæði og fólk fer á milli til að vinna.

Ingólfur H Þorleifsson, 29.8.2007 kl. 08:47

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband